Ljón: Þegar þú hlustar á hjartað segir það þér að eyða meiri tíma í hversdagsverkin. Að klæða sig, elda eða deila einhverju með ástvinum er tækifæri til að skína.
Lífið gengur sinn vanagang hérna í sveitinni. Er búin að vera í einhverri lægð síðustu vikuna. . . . enda var komin tími til að róa sig niður og hætta að flýgja sjálfa sig, setjast niður og hugsa aðeins út í lífið og tilveruna. . . . sem er pínu erfitt. Það er bara svo mikið búið að ganga á og ég hef gengið í gegnum miklar breytingar síðustu 3 mánuði er orðin alveg týnd. . . . og kannski ekki alveg heil í húfinni.
Vinnan er kannski ekki alveg eins og ég bjóst við, ekki eins spennandi og ég hélt. . . en ég verð bara að læra að slaka á . . . þetta hlýtur að koma

. . . . .er ekki þekkt fyrir að vera sú allra þolinmóðasta.
Ég er búin að koma mér fyirir hérna á Eyrinni í eldgamalli íbúð, sem eftir minni heppni er frekar léleg, það er flest bilað og bilar sem kemur hingað inn, mér til mikillar ánægju !!!! svo sem t.d sturtan, klósettið, sjónvarpsloftnetið, dyrabjallan og ég gæti lengi talið áfram. . . . en ætla að halda góða skapinu mínu aðeins lengur í dag þannig ég sleppi því

. En íbúðin er allavega stór og mjög sjarmerandi, ég veit bara ekkert hvað ég á að gera við allt þetta pláss, þar sem maður er vanur að vera í litla hellinum úti í Odense, ég fæ bara víðáttubrjálæði hérna inni. En ég er komin í gang með að safna húsgögnum, fann þessa fínu eldússtóla og fleira upp á ruslahaugunum, ég og Anna frænka komum þeim í lag og nú er ég bara með þessa fínu eldhússtóla sem kostuðu bara ekki neitt

. Ég keypti efni og Anna frænka þessi elska, saumað fyrir mig gardínur fyrir gluggana í höllinni og svo gaf Einsi mér lítið túbusjónvarp i afmælisgjöf um daginn, þannig að gellan er með sjónvarp. . . svona af og til

Svona verður maður bara að redda sér þegar maður á lítið af dóti og er ekki með mikið á milli handanna.
Ég keypti mér líka bíl í suma . . litla 10 ára gamala toyotu, heiðblá og sæt. . . .danger mouse varð að fara þar sem það kostaði of mikið að gera kallinn upp, þannig þessi bíll fær nafnið Mighty Mouse

. . . . og dugar mér vonandi eitthvað áfram

Ég held að þetta eigi allt eftir að koma hérna í sveitinni, maður verður allavega að vona það,annars fer þetta bara á hinn veginn, en ég sakna nú Reykjavíkur, vinanna og familiunnar, þarna í stórborginni minni. . . .
Ég búin að kaupa mér kort í ræktina hérna og hef verið að synda mikið núna í sumar svo að kílóin komi nú ekki aftur, er alveg að fýla það að hafa tapað 15 kg. af aukafarangri í vor

eini gallinn er að maður þarf að endurnýja fataskápinn allhressilega. . . . en svo verð ég bara að finna mér eitthvað að gera og kynnast meira af skemmtilegu fólki, því sófinn, ég og tölvan mín höfum verið allt of mikið saman upp á síðkastið

Ég fór í vikunni og keypt mér blóm inn i höllina. . . . það er ekkert heimili án blóma finnst mér, þannig að ég hef allavega einhvern sem bíður mín heima á kvöldin. . . .hann Burkni minn sér um pleisið. . . . . .vona nú að ég geti haldið líifi í honum í meira en mánuð. . . .kannski ég fái mér bara páfagauk líka til að tala við á kvöldi

En já það er yndilsegur sunnudagsmorgun hérna á Ak, er með rjúkandi kaffibolla í hendinni og sólinn skýn inn um gluggana í Höllinni . . . það er búið að vera skítakuldi hérna allt of lengi. . . . kannski líka bara inn í hjartanu mínu. . . . en 10 mánuðir eftir af samningnum hérna á Ak. . . verð að byrja að plana næsta skref

knús héðan úr sveitinni og hafiði það gott dúllur